Velkomin á vefsíðu Dýrin okkar sem er í eigu og rekstri Anítu Einarsdóttur, kt. 280288-2849. VSK.nr 149659
Vinsamlegast lestu skilmálana vandlega áður en þú verslar á vefsíðunni dyrinokkar.is þar sem þeir innihalda mikilvægar upplýsingar. Með því að nota vefverslun Dýrin okkar samþykkir þú þessa skilmála. Ef þú hefur einhverjar spurningar, ekki hika við að hafa samband í gegnum tölvupóstfangið dyrinokkar@dyrinokkar.is.
VÖRUR TIL EINKANOTA
Vörur seldar í vefverslun Dýrin okkar eru til persónulegra nota eingöngu. Undir engum kringumstæðum er heimilt að stunda endursölu á vörum seldar á vefversluninni án tilskilinna leyfa.
GEIÐSLULEIÐIR
Eftirfarandi greiðsluleiðir og kort er hægt að nota í vefverslu dyrinokkar.is
Kreditkort/Debetkort (örugg greiðsla í gegnum greiðslusíðu Verifone)
- Visa /Visa electron
- Mastercard / Maestro
- Millifæra á bankareikning
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.
VERÐ
Öll verð í vefversluninni eru í íslenskum krónum og með virðisaukaskatti. Það verð gildir allt kaupferlið og reikningar eru gefnir út með virðisaukaskatti.
Öll verð eru birt með fyrirvara um myndabrengl, prentvillur og innsláttarvillur. Dýrin okkar áskilur sér rétt til að afturkalla pantanir í heild eða að hluta ef að viðkomandi vara er uppseld, skemmd eða gölluð. Dýrin okkar mun upplýsa kaupanda um slíkt eins fljótt og kostur er.
AFSLÁTTAKÓÐAR
Afslættir með kóða eru almennt eingöngu gildir einu sinni og þegar kóðinn er notaður verður hann óvirkur og því ekki lengur gildur. Ekki er hægt að bæta við
afslætti eftir að pöntun hefur verið staðfest, þess vegna þarf að tryggja að
allar upplýsingar séu rétt skráðar áður en pöntun er staðfest.
Dýrin okkar áskilur sér rétt til að afturkalla afslátt, kynningarverð, kynningarkóða eða tilboð hvenær sem er.
AFGREIÐSLA OG AFHENDING
Afgreiðsla á vörum tekur að jafnaði 1-3 virka daga.
Ef þú þarft að breyta pöntun eftirá getur hlotist af því viðbótarkostnaður. Vinsamlegast vísið í pöntunarnúmer ef breyta þarf pöntun og sendið allar fyrirspurnir á dyrinokkar@dyrinokkar.is
Dýrin okkar ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi Póstsins. Verði vara fyrir tjóni frá því að að hún er afhent af Dýrin okkar og þar til hún berst viðtakanda er tjónið á ábyrgð flutningsaðila.
SKILARÉTTUR
Kaupandi hefur 14 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna, henni sé skilað í góðu lagi í óuppteknum upprunalegum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Tíminn miðast frá því er vara er afhent skráðum viðtakanda. Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með.
Endurgreiðsla nær ekki til flutningskostnaðar sem fellur til við afhendingu eða vöruskil. Vinsamlegast sendið tölvupóst á dyrinokkar@dyrinokkar.is fyrir spurningar varðandi skilavöru.
GÖLLUÐ VARA
Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðir Dýrin okkar allan kostnað sem gæti komið upp við sendingu. Vinsamlegast sendið tölvupóst dyrinokkar@dyrinokkar.is varðandi gallaða vöru.
TRÚNAÐUR
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar frá kaupanda verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.
ÖRYGGI
Dýrin okkar varðveitir ekki kortanúmer sem gefin eru upp við kaup í vefverslun. Þegar komið er að því að gefa upp kortaupplýsingar og ganga frá greiðslu er viðskiptavinur á öruggu vefsvæði dyrinokkar.is í gegnum greiðslusíðu Korta. Allar greiðslur eru framkvæmdar í vottuðu umhverfi sem uppfyllir PCI DSS öryggisstaðal.
Vefur Dýrin okkar notast við SSL skírteini sem tryggir öryggi í gagnaflutningi og samskiptum. Það tryggir að utanaðkomandi aðilar geta ekki komist inn í upplýsingar og gögn sem streyma frá notendum vefsins.
LÖG OG VARNARÞING
Þessi skilmálar eru í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans, skal það rekið fyrir Héraðsdómi Norðurlands Eystra.
Um skilmála þessa gilda ákvæði laga um neytendasamninga nr 16/2016 og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003. Allir frestir sem nefndir eru í lögum nr. 16/2016 byrja að líða þegar móttaka vöru á sér stað.
Skilmálar uppfærðir 11.06.2024